Dýrt að fara á Ólympíuleikana

Reiknað er með að fáir Danir styðji við bakið á handboltalandsliðinu á Ólympíuleikunum í sumar. stækka

Reiknað er með að fáir Danir styðji við bakið á handboltalandsliðinu á Ólympíuleikunum í sumar. Reuters

Hætt er við að margir gefi upp á bátinn að fara til London í sumar og fylgjast með keppni á Ólympíuleikunum sem þar fara fram frá síðari hluta júlí og fram undir miðjan ágúst. Verðlag í borginni er hátt og að sögn forsvarsmanns danskrar ferðaskrifstofu virðist ljóst að verðið muni fremur hækka en lækka þegar nær dregur leikunum.

Eftir því sem fram kemur á vef TV2 í Danmörku má reikna með að uppihald í viku verði ekki undir 300.000 krónum á meðan leikarnir standi yfir. Sú staðreynd fæli marga „venjulega“ Dani frá því að fara til London til þess m.a. að styðja landslið þjóðarinnar í handknattleik. Inni í fyrrgreindri upphæð eru miðar á viðburði leikana, ferðakostnaður innan borgarinnar og fleira, s.s. matur.

Danir eru vanir að fylgja landsliðum sínum í hópíþróttum vel eftir og m.a. voru um 400 þeirra í Serbíu nýverið meðan Evrópumótið í handknattleik karla stóð yfir.

Vonir standa til þess að danska kvennalandsliðið í handknattleik verði einnig á meðal þátttakenda á leikunum en það á fyrir höndum þátttöku í forkeppni á heimavelli fyrir leikana í vor.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is