Djokovic og Cheruiyot fengu Laureus-verðlaunin

Mynd 1 af 4
Vivian Cheruiyot, langhlaupari frá Kenía, er íþróttakona ársins hjá Laureus. Reuters

Novak Djokovic, tennisleikarinn frá Serbíu, og Vivian Cheruiyot, langhlauparinn frá Kenía, fengu hinar árlegu Laureus-viðurkenningar sem besta íþróttafólkið í karla- og kvennaflokki þegar þær voru afhentar í London í fyrrakvöld. Það eru meðlimir í Laureus World Sport Academy sem greiða atkvæði í þessu kjöri sem haldið hefur verið frá árinu 2000.

Djokovic vann þrjú stórmót á árinu 2011 og ýtti Rafael Nadal af toppi heimslistans í tennis.

Cheruiyot varð heimsmeistari í bæði 5 og 10 þúsund metra hlaupi á HM í Daegu.

Knattspyrnulið Barcelona var valið lið ársins, sem bæði Evrópu- og heimsmeistari félagsliða og spænskur meistari.

Kylfingurinn Rory McIlroy frá Norður-Írlandi fékk viðurkenningu sem sá íþróttamaður sem mest sló í gegn á árinu 2011. Hann vann sitt fyrsta stórmót, US Open, 22 ára gamall.

Kylfingurinn Darren Clarke frá Norður-Írlandi var heiðraður fyrir endurkomu ársins. Hann vann opna breska meistaramótið í 20. tilraun, 42 ára gamall.

Pistorius var heiðraður

Oscar Pistorius, Suður-Afríkumaðurinn sem notar gervifætur frá Össuri, var valinn besti íþróttamaðurinn úr röðum fatlaðra. Hann varð fyrsti fatlaði íþróttamaðurinn til að vinna verðlaun á heimsmeistaramóti ófatlaðra þegar hann var í silfursveit Suður-Afríku á HM í Daegu.

Bandaríski brimbrettakappinn Kelly Slater fékk viðurkenningu sem íþróttamaður ársins í „öðruvísi“ greinum.

Englendingurinn Bobby Charlton, fyrrverandi leikmaður Manchester United, fékk heiðursverðlaun Laureus fyrir lífsstarfið – sinn einstaka knattspyrnuferil.

Raí, fyrrum landsliðsmaður Brasilíu í knattspyrnu, fékk verðlaunin „íþróttir til góðs“ fyrir baráttu sína fyrir réttlátu þjóðfélagi.

vs@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is