HK á toppinn með sigri á Þrótti

Aðalsteinn Eymundsson og félagar í HK eru efstir. stækka

Aðalsteinn Eymundsson og félagar í HK eru efstir. mbl.is/Ómar

HK er komið í efsta sætið í úrvalsdeild karla í blaki, Mikasadeildinni, eftir útisigur á Þrótti úr Reykavík, 3:1, í gærkvöld.

Þróttarar unnu þó fyrstu hrinuna, 25:22, en HK tók svo leikinn í sínar hendur og vann hinar 25:13, 25:20 og 25:16.

Stigahæstu leikmenn voru Einar Sigurðsson með 19 stig fyrir HK en Alexander Stefánsson og Brynjar Pétursson skoruðu 16 stig. Í liði Þróttar var Fannar Grétarsson með 15 stig, Andris Orlovs með 12 stig og Guðmundur P. Guðmundsson með 11 stig.  

HK er á toppi deildarinnar með 16 stig, en Stjarnan er með 15. Þróttur er í þriðja sæti með 11 stig og KA á botninum með 3 stig.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is