Íris Eva setti Íslandsmet

Íris Eva Einarsdóttir með verðlaun sín. stækka

Íris Eva Einarsdóttir með verðlaun sín.

Íris Eva Einarsdóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur setti í gærkvöld Íslandsmet í loftriffli kvenna á Reykjavíkurmóti í skotfimi sem haldið var í Egilshöllinni. Íris fékk 383 stig af 400 mögulegum.

Ásgeir Sigurgeirsson úr SR var stigi frá Íslandsmeti sínu í loftskammbyssu karla en hann sigraði með 585 stig. Tómas Viderö úr SFK fékk 569 stig og Gunnar Þór Hallbergsson úr SR varð þriðji með 546 stig.

Í loftskammbyssu kvenna sigraði Jórunn Harðardóttir, SR, með 371 stig, önnur varð Kristína Sigurðardóttir, SR, og í þriðja sæti Berglind Björgvinsdóttir, SKA.

Í loftriffli karla sigraði Guðmundur Helgi Christensen, SR, með 559 stig og Sigfús Tryggvi Blumenstein, SR, varð annar með 522 stig.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is