Ullrich dæmdur í bann

Jan Ullrich vann Frakklandshjólreiðarnar árið 1997.

Jan Ullrich vann Frakklandshjólreiðarnar árið 1997. AP

Þýski hjólreiðamaðurinn Jan Ullrich hefur verið dæmdur í keppnisbann fram í ágúst á næsta ári vegna notkunar á ólöglegum lyfjum. Auk þess verður allur árangur hans á mótinu frá árinu 2005 strikaður út en hann hafnaði m.a. í þriðja sæti í Frakklandshjólreiðunum fyrir sjö árum. 

Ullrich vann Frakklandshjólreiðarnir fyrir 15 árum en sú staðreynd verður ekki strikuð út. Hann hætti keppni fyrir fimm árum. Ullrich er 38 ára gamall.

Ullrikch sagði í morgun að hann væri fyrst og fremst ánægður með að málið hefði nú verið til lykta leitt en það hefur þvælst milli dómstóla í nærri fimm ár. Hann var dæmdur í hálfs árs bann árið 2002. Krafa var uppi um að árangur Ullrichs á mótum allt aftur til ársins 2002 yrði strikaður út. Íþróttadómstóllinn í Lausanne í Sviss, sem kvað upp dóminn í morgun, hafnaði þeirri kröfu og lét nægja að öll úrslit Þjóðverjans á mótum aftur til ársins 2005 verði afmáð úr skrám.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is