Aðalheiður Rósa úr leik í Bakú

Aðalheiður Rósa Harðardóttir stækka

Aðalheiður Rósa Harðardóttir Kristinn Ingvarsson

Aðalheiður Rósa Harðardóttir féll úr keppni eftir aðra umferð á Evrópumeistaramótinu í karate 21 árs og yngri í Bakú í Aserbaítsjan í dag. Átján keppendur voru skráðir í hennar flokki í kata en einungis landsmeistarar fengu þátttökurétt á mótinu.

Aðalheiður sat hjá í fyrstu umferð en mætti svo Z.Anti frá Ungverjalandi í annarri umferð.  Eftir jafna viðureign vann Anti með þremur stigum gegn tveimur. Sú ungverska endurtók leikinn í 8 manna úrslitum en tapaði svo í undanúrslitum sem þýddi að Aðalheiður fékk ekki uppreisnaviðureign og tækifæri til að keppa um þriðja sætið. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is