Flestir bestu með á MÍ í frjálsum
Flest af besta frjálsíþróttafólki landsins verður í eldlínunni í Laugardalshöllinni um helgina en þá fer fram Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum. Meðal þeirra sem keppa eru Kári Steinn Karlsson og Ásdís Hjálmsdóttir sem tryggt hafa sér keppnisréttinn á Ólympíuleikunum í London í sumar.
Nýbakaðir Íslandsmethafar, Trausti Stefánsson og Aníta Hinriksdóttir, verða á meðal keppenda en Trausti bætti á dögunum metið í 400 metra hlaupi og Aníta í 800 metra hlaupi.
Ljóst er að það stefnir í hörkukeppni í einstökum greinum eins og langstökki kvenna, 60 m hlaupum beggja kynja og svo er spurning hvort met falli í 400 m hlaupi karla og 800 m hlaupi kvenna.
Kristinn Torfason mun leitast við að ná lágmarki (8,15 m) fyrir HM innanhúss í langstökkskeppninni, en hann hefur haft nokkra sérstöðu í þessari grein vegna meiðslaforfalla Þorsteins Ingvarssonar úr HSÞ. Báðir stefna reyndar á Ólympíulágmarkið í greininni (8,10 m).
Keppni í dag hefst klukkan 12 og stendur til rúmlega 15 og á morgun hefst keppni klukkan 12 og stendur fram til 15.30.






