Íþróttir
| mbl
| 10.2.2012
| 11:29
María í öðru sæti í Noregi
María Guðmundsdóttir hafnaði í öðru sæti á stórsvigsmóti í Noregi í gær og Helga María Vilhjálmsdóttir endaði í níunda sæti.
María komst þar með enn á verðlaunapall á mótum vetrarins í Noregi og Helga María náði sínum besta árangri í vetur, miðað við FIS-punkta, og hækkar í kjölfarið væntanlega verulega á heimslistanum.
Alls voru 59 keppendur í stórsviginu og 43 þeirra luku keppni. Auður Brynja Sölvadóttir hafnaði í 38. sæti en Tinna Rut Hauksdóttir var í hópi þeirra sem náðu ekki að ljúka keppni.
Þær kepptu einnig á miðvikudaginn en þá varð Helga María í 14. sæti og Auður Brynja í 44. sæti af 45 sem luku keppni en þá voru María og Tinna Rut í hópi þeirra átján sem náðu ekki að ljúka keppni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






