Eik óvænt í undanúrslit í blaki

KA er komið í undanúrslit í blaki karla ásamt Stjörnunni. stækka

KA er komið í undanúrslit í blaki karla ásamt Stjörnunni. Ómar Óskarsson

 Öðru undanmótinu í bikarkeppni Blaksambands Íslands er lokið en það fór fram á Akureyri. Eik kom á óvart í kvennaflokki og tryggði sér sæti í undanúrslitum eftir fjóra sigra og eitt tap, en leikið var í riðlum. HK tryggði sér svo hitt lausa sætið í undanúrslitunum með því að vinna deildina en áður höfðu tvö lið, Afturelding og Þróttur Nes, tryggt sæti sitt í undanúrslitum.

KA-menn geta svo varið bikartitilinn frá síðasta ári í karlaflokki en þeir tryggðu sæti sitt ásamt Stjörnunni. KA vann riðilinn en Stjarnan hafnaði í öðru sæti. Þau mæta annað hvort Þrótti R. eða HK sem áður höfðu tryggt sæti sitt í undanúrslitunum.

Undanúrslitaleikirnir í bikarnum verða laugardaginn 17. mars í Laugardalshöllinni. Úrslitaleikirnir verða sunnudaginn 18. mars.   Liðin fjögur sem komust áfram um helgina fara nú í pott sem dregið verður úr í næstu viku.  

Undanúrslitaleikir kvenna:
Þróttur Nes - Eik/HK
Afturelding - HK/Eik   

Undanúrslitaleikir karla:
Þróttur R - KA/Stjarnan
HK - Stjarnan/KA

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is