Hörkukeppni í bikarkeppninni í blaki

Frá keppni í blaki. stækka

Frá keppni í blaki. mbl.is

Annað undanmót bikarkeppni Blaksambands Íslands hófst í Höllinni á Akureyri í gærkvöldi. Alls taka fimm lið þátt í karlaflokki og sex í kvennaflokki  og berjast þau um tvö sæti í undanúrslitum keppninnar í hvorum flokki.


Í kvennaflokki vann HK Ými nokkuð örugglega, 2:0.  Stjarnan og Eik áttust við í æsispennandi leik þar sem Eikarkonur höfðu betur 2:0 (26:24 og 25:21). Nokkuð óvænt úrslit þar á ferð þar sem lið Eikar er utan deildar.

Þróttur Reykjavík og KA áttust við, sömuleiðis í hörkuleik. Þar hafði KA betur að þessu sinni, 2:0 (25:21 og 25:19). 

 HK vann KA 2-0 (25:19 og 26:24), Stjarnan vann Ými 2-0 (25:18 og 25:21) en jafnasti og skemmtilegasti leikurinn var viðureign Þróttar R.  og Eikar. Þróttur vann fyrstu hrinuna nokkuð örugglega 25:18. Eikin neitaði að gefast upp og knúði fram sigur í annarri hrinunni 27:25 og þurfti því að leika oddahrinu í leiknum. Eikin hafði frumkvæðið í oddahrinunni sem endaði 15:12, Eik í vil. 

Í karlaflokki átti Stjarnan að mæta UMFG en Grundfirðingar mættu ekki til leiks og Stjörnunni því dæmdur sigur í leiknum 2:0. Í hinni viðureign kvöldsins mættust Þróttur Nes og KA.  Um var að ræða æsispennandi leik sem endaði í oddahrinu og sigri Þróttar Nes. Þróttur Nes vann fyrstu hrinuna 25:23 og KA aðra hrinuna 25:19. Oddahrinan var jöfn á öllum tölum en KA liðið missti þó Filip Szcewzyk í meiðsli en hann er uppspilari liðsins og þjálfari þess. Ungur uppspilari liðsins, Valþór Karlsson kom inn og stóð sig vel hrinan var spennandi allt til loka og endaði 16:14 fyrir Þrótti Nes.

Staðan í kvennaflokki er því þannig að HK er með 6 stig, Eik 5 stig, Stjarnan og KA hafa 3 stig, Þróttur Reykjavík 1 stig og Ýmir situr á botninum með 0 stig. 

Staðan í karlaflokki er þannig að Stjarnan er efst með 3 stig, Þróttur Nes í öðru sætinu með 2 stig, KA í þriðja sæti með 1 stig. Fylkir og UMFG eru án stiga en Fylkisliðið sat hjá í kvöld.

Keppni verður fram haldið í dag.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is