ÓL í hættu hjá Þormóði

Þormóður Árni Jónsson. stækka

Þormóður Árni Jónsson. Brynjar Gauti

Júdómaðurinn Þormóður Árni Jónsson bíður milli vonar og ótta eftir niðurstöðu rannsóknar hjá lækni hvort liðband í utanverðu vinstra hné er slitið eða ekki. „Ég get ekkert annað en beðið og vonað að það sé ekki slitið,“ sagði Þormóður Árni í  gær.

Ef liðbandið er slitið getur hann gefið drauminn um að keppa á Ólympíuleikunum í London í sumar upp á bátinn. Sé liðbandið tognað lifir draumurinn áfram en ljóst að hann þarf að taka sér hlé frá æfingum og keppni um nokkurt skeið meðan liðbandið jafnar sig. Um leið verður hann að vona að sá árangur sem hann hefur þegar náð dugi til að tryggja honum keppnisrétt á Ólympíuleikunum. Eins og staðan er núna er líklegt að Þormóður Árni hafi safnað nógu mörgum stigum til þess að tryggja sér farseðilinn á leikana.

„Ég kemst vonandi að hjá lækni á mánudaginn og þá verður tekin mynd af hnénu. Þá kemur hið sanna í ljós,“ sagði Þormóður Árni.

Þormóður Árni var í æfingabúðum í Frakklandi í vikunni til undirbúnings fyrir þátttöku á júdómóti sem haldið verður í Austurríki á sunnudaginn þegar hann fékk högg á hnéð. Þormóður var við æfingar á gólfi íþróttahallar ásamt fleiri júdómönnum þegar einhverjir þeirra féllu á hann og við það kom högg á hnéð.

„Læknar í Frakklandi þreifuðu á mér hnéð og telja að liðbandið sé ekki slitið. Það er hins vegar ekki hægt að fella endanlegan dóm fyrr en með myndatöku. Þangað til niðurstaða hennar liggur fyrir er lítið annað hægt að gera en vona það besta,“ segir Þormóður Árni Jónsson júdómaður.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is