„Finnst ég vera orðin dálítið góð“
Ólafur Már Þórisson, omt@mbl.is
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum var haldið í Laugardalnum um helgina. Það voru ÍR-ingar sem báru sigur úr býtum í liðakeppninni með nokkrum yfirburðum eða 38.991 stigi. FH kom næst með 21.358 stig en þessi lið voru í nokkrum sérflokki því UFA hafnaði í þriðja sæti með 11.617.
Afrek mótsins átti Aníta Hinriksdóttir þegar hún hljóp 800 metrana á 2:07,86 mínútum fyrir ÍR. Tíminn skilaði henni 1.054 stigum og er afrekið ekki minna fyrir þær sakir að deginum áður var hún í 400 metra hlaupi. Annað besta afrek mótsins átti Hafdís Sigurðardóttir UFA eða 1.028 stig í 200 metra hlaupi. Þá átti María Rún Gunnlaugsdóttir einnig mjög gott mót og heimsótti verðlaunapallinn í fjórum greinum og safnaði þannig stigum fyrir Ármann.
Verðlaunin dreifðust betur hjá körlunum þar sem breiddin er nokkuð meiri. Trausti Stefánsson átti afrek mótsins hjá körlunum þegar hann hljóp 200 metrana og fékk fyrir það 1.020 stig en Trausti keppir fyrir FH. Kolbeinn Höður Gunnarsson frá UFA setti nýtt aldursflokkamet 16-17 ára þegar hann kom í mark á tímanum 49,12 en metið var fimm ára gamalt.
Sá keppandi er hlaut flesta Íslandsmeistaratitla á mótinu eða fimm, var Hafdís Sigurðardóttir. Hún átti einnig afmæli í gær og var því ánægð að fagna árunum 25 með frábærum árangri. „Það er ekki verra, þetta var mjög gaman. Ég var rosalega sátt með allt, var að bæta mig í þremur hlaupagreinum og við mitt besta í langstökkinu. Svo að fá gullið í fjórum sinnum 400 metra hlaupi var ekkert að skemma fyrir,“ sagði Hafdís en sveit UFA kom nokkuð á óvart í því hlaupi.
Hafdís náði eins og áður segir öðrum, þriðja og fimmta, besta árangri mótsins. Spurð hvort hún hafi átt von á viðlíka árangri sagði Hafdís; „Nei, í rauninni ekki. Það er engu að síður ótrúlega gaman að vera komin svona hátt á stigatöflunni. Mér finnst ég vera orðin dálítið góð þegar ég næ yfir þúsund stigin,“ sagði þessi metnaðarfulla stúlka að norðan sem vill ná Íslandsmetinu í langstökki spurð um markmið sín.
Nánar um mótið í 8 síðna íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.






