Íþróttir
| Morgunblaðið
| 20.2.2012
| 11:09
„Þetta var ógeðslega súrt“
„Þetta var ógeðslega súrt. Maður var alveg frekar þungur fyrstu klukkutímana eftir þetta en svo áttar maður sig á því að maður græðir ekkert á því. Núna er bara að halda áfram að safna reynslu, keppa á heimsbikarmótum og svona,“ sagði Ásgeir Sigurgeirsson skotíþróttamaður sem var svo grátlega nálægt því að komast á Ólympíuleikana í London að erfitt er að lýsa því með orðum.
Ásgeir keppti á Evrópumeistaramótinu í loftskammbyssukeppni um helgina og hlaut 575 stig en hefði þurft eitt stig í viðbót til að fá ólympíusæti. Nú er draumurinn um London úr sögunni.
Nánar í átta síðna íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






