Spilling er landlægur vandi

Spilling er innan knattspyrnunnar í Suður-Kóreu eins og í mörgum fleiri íþróttagreinum í landinu. stækka

Spilling er innan knattspyrnunnar í Suður-Kóreu eins og í mörgum fleiri íþróttagreinum í landinu. Reuters

Svo mikið er orðið um að úrslitum sé hægrætt í vinsælustu íþróttagreinum Suður-Kóreu að íþróttamálaráðherra landsins segir að íþróttalíf landsins sé í hættu og trúverðugleiki marga íþróttagreina sé nær enginn.

Spilling hefur um nokkurt skeið verið mikið vandamál í kringum íþróttir í Suður-Kóreu. Á síðustu árum hafa komið upp mörg mál þar sem sannað hefur þótt að úrslitum knattspyrnuleikja væri hagrætt. Nú hefur verið upplýst að spillingin nær út í fleiri íþróttagreinar s.s. körfuknattleik og hafnarbolta, sem einnig eru vinsælar í landinu.

Íþróttamálaráðherra Suður-Kóreu, Choe Kwang-Shik, segir að spillingin sé orðin slík að trúverðugleiki íþrótta í landinu sé í orðinn lítill sem enginn. Hann segir að íþrótthreyfingin í landinu þurfi á stórhreingerningu á halda til þess að laga ástandið.

Reynt hefur verið að taka á spillingarmálum í kringum íþróttir í Suður-Kóreu um nokkurt skeið en árangur hefur verið lítill. Hægt er dæma leikmenn, þjálfara og forsvarsmenn félaga sem uppvísir verða að því að hagræða úrslitum í allt að fimm ára fangelsi og til greiðslu sektar sem nemur að jafnvirði fimm milljónum króna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is