Ísland upp í efsta flokk

Íslenska landsliðið í handknattleik hefur lyft sér upp í efsta styrkleikaflokk. stækka

Íslenska landsliðið í handknattleik hefur lyft sér upp í efsta styrkleikaflokk. mbl.is/Golli

Íslenska landsliðið í handknattleik karla verður í fyrsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir undankeppni Evrópumóts landsliða í Kaupmannahöfn föstudaginn 20. apríl.

Þetta er ljóst eftir að Handknattleikssamband Evrópu gaf út styrkleikalista sinn fyrir síðustu helgi.

Íslenska landsliðið er í fimmta sæti listans en þjóðirnar í öðru til áttunda sæti verða í efsta styrkleikaflokki. Danir, sem tróna á toppnum, verða gestgjafar Evrópumótsins sem haldið verður dagana 14.-26. janúar 2014. Þeir sleppa við þátttöku í riðlakeppninni sem hefst í haust og lýkur í júní 2013.

Nánar í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is