Íþróttir
| mbl
| 22.2.2012
| 15:02
| Uppfært
15:52
María fagnaði sigri í Voss
Skíðakonan María Guðmundsson vann með yfirburðum svigmót í Voss í Noregi í dag en um FIS-mót var að ræða. María var með bestan tíma í fyrri og seinni ferð og lauk keppni um 3 sekúndum á undan næstu stúlku.
Erla Ásgeirsdóttir hafnaði í 7. sæti, Freydís Halla Einarsdóttir varð í 9. sæti, Erla Guðný Helgadóttir í 12. sæti, Thelma Rut Jóhannsdóttir í 16. sæti og Tinna Rut Hauksdóttir endaði í 22. sæti. 43 konur hófu keppni en 24 þeirra tókst að ljúka keppni.
Í karlaflokki náði Brynjar Jökull Guðmundsson bestum árangri Íslendinganna en hann varð í 7. sæti. Sturla Snær Snorrason var með annan besta tíma eftir fyrri ferðina en tókst ekki að ljúka seinni ferðinni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






