María framarlega í Svíþjóð

María í miðjunni ásamt stöllum sínum Írisi Guðmundsdóttur og Fanneyju Guðmunsdóttur. stækka

María í miðjunni ásamt stöllum sínum Írisi Guðmundsdóttur og Fanneyju Guðmunsdóttur. mbl.is/Guðmundur

Skíðakonan María Guðmundsdóttir hefur staðið sig vel á mótum í Svíþjóð undanfarið.

Hún keppti á alþjóðlegum svigmótum fjóra daga í röð, tvisvar í Gopshus og tvisvar í Borlänge, og varð í fimmta til sjöunda sæti í öll skiptin. María fékk á bilinu 33-43 FIS-stig á mótunum fjórum.

Þar á undan varð María tvívegis í öðru sæti á svigmótum í Kongsberg í Noregi, þar sem hún býr og æfir.

Í umfjöllun í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag um árangur skíðamanna í keppni erlendis að undanförnu kemur fram, að stór hluti af landsliði Íslands í alpagreinum
hefur æft og keppt í Svíþjóð að undanförnu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is