Sala hetjunnar olli hamförum
Í sögustund íþróttablaðs Morgunblaðsins látum við hugann reika að þessu sinni tuttugu og fjögur ár aftur í tímann til borgarinnar Edmonton í Kanada. Þar riðu yfir eins konar hamfarir á þeim annars ágæta degi 9. ágúst 1988. Hamfarirnar voru þó ekki af náttúrulegum orsökum heldur var íshokkígoðsögnin Wayne Gretzky seld til Los Angeles Kings.
Salan á Gretzky var um margt merkileg enda hafa nokkrar heimildamyndir verðir gerðar um hana og þá sérstaklega þær afleiðingar sem hún hafði. Skemmst er frá því að segja að allt ætlaði um koll að keyra í borginni og víðar í Kanada. NHL-liðið Edmonton Oilers var stolt borgarbúa, og ekki að ástæðulausu, því þegar þarna var komið sögu hafði liðið unnið Stanley-bikarinn fjórum sinnum á fimm árum. Gretzky átti ekki lítinn þátt í þessari velgengni en hann er handhafi fjölmargra meta í NHL-deildinni og iðulega nefndur til sögunnar sem snjallasti íshokkíleikmaður sem uppi hefur verið.
Málið tekið upp í þinginu
Ekki er ofsagt að segja að mikil reiði hafi brotist út í Edmonton þegar greint var frá sölunni sem Ameríkanar kalla þó skipti. Raunar er þessi atburður svo umtalaður að hann er gjarnan kallaður „The trade“ sem mætti þýða sem félagaskiptin á íslensku. Til marks um alvöru málsins, þá krafðist leiðtogi nýja demókrataflokksins í neðri deild kanadíska þingsins, Nelson Riis, að stjórnvöld beittu sér í málinu og kæmu í veg fyrir söluna.
Reiði stuðningsmanna Edmonton beindist að einhverju leyti að Gretzky sjálfum og var litið á hann sem svikara. Besti leikmaður þessarar stoltu íshokkíþjóðar hafði ákveðið að yfirgefa Kanada til þess að spila í Bandaríkjunum. Slíkt þótti ekki til eftirbreytni á þeim tíma og þykir kannski ekki enn. Reiðin beindist þó í ríkari mæli að Peter Pocklington, eiganda liðsins, og einnig eiginkonu Gretzkys, Janet, sem var leikkona og bjó í Hollywood. Þau voru nýgift og höfðu einungis verið saman í rúmt ár.
Sjá nánar í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.






