Aftur sigraði María í Noregi

María á fleygiferð. stækka

María á fleygiferð. mbl.is/SKI

María Guðmundsdóttir skíðakona frá Akureyri sigraði á svigmóti annan daginn í röð í Jolster í Noregi.

María vann með nokkrum yfirburðum en fleiri Íslendingar tóku þátt í mótinu. Erla Ásgeirsdóttir Breiðabliki varð í 8. sæti, Erla Ásgeirsdóttir Breiðabliki í 8. sæti, Freydís Halla Einarsdóttir Reykjavík í 13. sæti, Erla Guðný Helgadóttir Reykjavík í 14. sæti, Thelma Rut Jóhannsdóttir Ísafirði í 16. sæti og Tinna Rut Hauksdóttir Reykjavík varð í 17. sæti.

Sturla Snær Snorrason Reykjavík varð í 6. sæti aðeins sekúndu á eftir sigurvegaranum Andra Árnasyni Svíþjóð, en hann er  sonur landsliðsþjálfarans Árna Þórs Árnasonar.

Katrín Kristjánsdóttir Akureyri og Brynjar Jökull Guðmundsson Reykjavík luku ekki keppni í dag.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is