Bikarmeistararnir tefla fram ungu liði
Kvennalið Vals í knattspyrnu kvenna hefur misst átta leikmenn úr bikarmeistaraliði sínu fyrir næsta sumar: Hólmfríði Magnúsdóttur, Hallberu Guðnýju Gísladóttur, Málfríði Ernu Sigurðardóttur, Kristínu Ýri Bjarnadóttur, Emblu Grétarsdóttur og Björk Gunnarsdóttur auk þess sem bandarísku leikmennirnir tveir munu ekki koma aftur til félagsins.
Morgunblaðið spurði þjálfarann Gunnar Borgþórsson hvort Valur ætlaði að safna liði fyrir sumarið. „Nei í rauninni ekki. Eins og sést hefur í vetur eigum við margar ungar stelpur sem standa sig nokkuð vel. Við erum að skoða hvort við getum náð í annan markvörð til að vera með tvo markverði,“ sagði Gunnar en unglingalandsliðsmarkvörðurinn Þórdís Aikman mun væntanlega verja mark Vals í sumar. Dóra María Lárusdóttir og Laufey Björnsdóttir hafa bæst við hópinn hjá Val auk Telmu Þrastardóttur sem bíður eftir leikheimild.
„Dóra er bara að koma heim, Telma kemur frá Noregi og Laufey er því eini leikmaðurinn sem við höfum fengið frá öðru íslensku liði. Við erum aðeins að breyta áherslunum á Hlíðarenda. Við ætlum að nota þessar ungu stelpur og byggja upp. Maður veit svo sem aldrei hvort einhver leikmaður bætist við en við ætlum að reyna að vera svolitlir töffarar og spila á ungu Valsliði. Við treystum okkur til þess að keppa um titla með þennan hóp en svo kemur það bara í ljós,“ sagði Gunnar í samtali við Morgunblaðið í gær. kris@mbl.is






