Isinbajeva bætti eigið heimsmet

Jelena Isinbajeva fagnar heimsmeti sínu í Globen í kvöld. stækka

Jelena Isinbajeva fagnar heimsmeti sínu í Globen í kvöld. Scanpix/AP

Rússinn Jelena Isinbajeva bætti í kvöld eigið heimsmet í stangarstökki innanhúss um einn sentímetra þegar hún stökk yfir 5,01 metra á alþjóðlegu frjálsíþróttamóti í Globen í Stokkhólmi.

Þetta er í 28. sinn sem Isinbajeva bætir heimsmetið í stangarstökki, annað hvort innan- eða utandyra. Þrjú ár eru liðin síðan hún setti heimsmet síðast í stangarstökki innanhúss en í millitiðinni hefur hún glímt við ýmis meiðsli og gengið einnig í gegnum skipti á þjálfurum með misjöfnum árangri. Fyrra met setti Isinbajeva í Donetsk í febrúar 2009.

Isinbajeva bætti heimsmetið í annarri tilraun sinni við 5,01 metra. Áður hafði hún stokkið yfir 4,92 metra í þriðju og síðustu tilraun. 

Isinbajeva sagði eftir að hafa slegið metið í kvöld að hún vonaðist til þess að vera kominn inn á beinu brautina á nýjan leik, ekki veitti af því þar sem Ólympíuleikar væri framundan í sumar. Hún varð Ólympíumeistari 2004 og 2008.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is