Íþróttir
| mbl
| 23.2.2012
| 14:13
| Uppfært
14:58
Ragna sló út andstæðing frá Perú
Ragna Ingólfsdóttir er komin í aðra umferð á alþjóðlegu móti í badminton í Austurríki.
Forkeppni mótsins hófst í gær en aðalkeppnin í dag og þar vann Ragna Christinu Aicardi frá Perú í fyrstu umferðinni 21:10 og 21:19. Ekki er mjög langt á milli þeirra á heimslistanum en þar er Ragna í 73. sæti en Aicardi er í 94. sæti.
Ragna heldur leik áfram í mótinu á morgun og mætir í annarri umferð Simone Prutsch frá Austurríki, en hún er númer 83 á heimslistanum. Ragna hefur tvívegis áður mætt henni á badmintonvellinum og sigraði í bæði skiptin.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






