Tólfti sigurinn hjá Lindsey Vonn

Lindsey Vonn hefur ástæðu til að gleðjast.
Lindsey Vonn hefur ástæðu til að gleðjast. Reuters

Lindsey Vonn frá Bandaríkjunum sigraði í síðustu brunkeppni heimsbikarsins á skíðum í Schladming í Austurríki í morgun. Var þetta hennar tólfti sigur í heimsbikarnum í vetur en hún var áður búin að tryggja sér sigur í heildarstigakeppninni.

Vonn var tæplega sekúndu á undan Marion Rolland frá Frakklandi en Tina Maze hafnaði í þriðja sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert