Einu sinni unnið Svía í ellefu leikjum
Þóra B. Helgadóttir markvörður spyrnir frá marki Íslands í leiknum við Bandaríkin í fyrradag. Ljósmynd/Algarvephotopress
Ísland mætir í kvöld annarri stórþjóðinni á þremur dögum í Algarve-bikar kvenna í knattspyrnu. Að þessu sinni eru Svíar, bronsverðlaunahafarnir á síðasta heimsmeistaramóti, andstæðingar íslenska liðsins en viðureign þeirra hefst í Albufeira á suðurströnd Portúgals klukkan 18.
Íslenska liðið tapaði í fyrradag fyrir Bandaríkjunum, 0:3, í fyrstu umferð riðlakeppninnar en Svíar og Kínverjar gerðu þá jafntefli, 1:1. Þetta er tólfta viðureign Íslands og Svíþjóðar og til þessa hefur Svíþjóð unnið í níu skipti af ellefu. Ísland náði óvæntu jafntefli, 2:2, þegar þjóðirnar mættust í undankeppni HM í Karlskoga, þar sem Ásthildur Helgadóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir jöfnuðu í tvígang.
Síðan tókst íslenska liðinu að sigra Svía í fyrsta sinn í Algarve-bikarnum, 2011, þrátt fyrir að sænska liðið kæmist yfir á 2. mínútu leiksins. Margrét Lára jafnaði og Katrín Jónsdóttir skoraði sigurmarkið, og í uppbótartíma tryggði Þóra B. Helgadóttir sigurinn með glæsilegri markvörslu.
Í fyrra hefndu Svíar fyrir það tap með öruggum sigri á Algarve, 4:1, þar sem Dóra María Lárusdóttir skoraði mark Íslands.
Pia Sundhage, fyrrverandi landsliðskona Svía, tók við þjálfun sænska liðsins í vetur en hún hefur undanfarin ár þjálfað landslið Bandaríkjanna með góðum árangri. Svíar ætla sér stóra hluti á heimavelli í úrslitakeppni EM í sumar og lið þeirra verður samtals saman í 105 daga í undirbúningi sínum fyrir keppnina.
Sundhage sagði í gær að það væri góð prófraun fyrir sitt lið að mæta harðskeyttu liði Íslands tvisvar á einum mánuði en liðin mætast aftur í vináttuleik í Växjö 6. apríl. Hún sagði að ef sínar stúlkur hefðu betur í návígjunum við Íslendingana í þessum tveimur leikjum væru þær vel á veg komnar. vs@mbl.is




