Jóhanna í lokamótið

Jóhanna Gerða Gústafsdóttir. stækka

Jóhanna Gerða Gústafsdóttir. mbl.is

Jóhanna Gerða Gústafsdóttir úr Ægi náði lágmörkum um síðustu helgi fyrir hið sterka lokamót í bandaríska háskólasundinu, NCAA. Jóhanna keppir fyrir Flórída International-háskólann og stóð sig vel á svæðamótinu Sun Belt Coference Championship.

Jóhanna er önnur af tveimur sundkonum úr skólaliðinu sem náðu lágmörkum fyrir mótið og er það met í skólanum en í fyrra átti Flórída International einn keppenda á lokamótinu sem fram fer í Indianapolis.

Jóhanna sigraði í tveimur einstaklingsgreinum í mótinu. Hún setti skólamet í 100 jarda skriðsundi í 4x100 jarda boðsundi og var mjög nálægt sínum besta tíma í 200 jarda baksundi. kris@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda