Anton Sveinn nærri Íslandsmeti

Anton Sveinn McKee hefur lokið tveimur greinum af fjórum á …
Anton Sveinn McKee hefur lokið tveimur greinum af fjórum á HM. mbl.is/Golli

Anton Sveinn McKee úr Ægi hjó afar nærri Íslandsmeti sínu í 800 metra skriðsundi á HM í Barcelona í dag. Hann kom í mark á 8:08,70 mínútum en Íslandsmetið er 8:08,09. Anton var sjálfur ekki sérlega sáttur við sundið.

„Ég byrjaði vel og leið vel í lauginni en svo þyngdist þetta. En ég læt þetta ekkert pirra mig,“ sagði Anton sem syndir 200 metra bringusund á fimmtudag og svo 400 metra fjórsund á sunnudaginn.

Anton varð í 25. sæti af 34 keppendum. Hann hafði áður sett Íslandsmet í 400 metra skriðsundi á sunnudaginn.

Á heimasíðu sundsambandsins er haft eftir Jacky Pellerin landsliðsþjálfara að árangur íslensku keppendanna á HM sé í góðu samræmi við undirbúning.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert