Ástrós Brynjarsdóttir úr Keflavík og Helgi Valentín Arnarsson úr Fram náðu bestum árangri íslensku keppendanna á Evrópumóti ungmenna, 12-14 ára, í taekwondo sem lauk í Rúmeníu í gær.
Ástrós keppir í -47 kg flokki. Hún sat hjá í 1. umferð en mætti svo stúlku frá Hvíta-Rússlandi í 2. umferð. Hvít-Rússinn komst yfir í fyrstu lotu en Ástrós náði sér svo á strik, komst yfir og hélt forystunni til loka bardagans. Hún mætti næst öflugum keppanda frá Svíþjóð í bardaga sem var hnífjafn þar til um mínúta var eftir að sú sænska komst yfir og tryggði sér sigur. Svíinn endaði í 2. sæti mótsins en Ástrós í 5. sæti.
Helgi Valentín, sem keppir í +65 kg flokki, vann Úkraínumann í 2. umferð í hörkuspennandi bardaga. Grípa þurfti til bráðabana þar sem Helgi sótti hart og náði að tryggja sér sigur. Hann mætti svo Króata en gat ekki haldið áfram í 2. lotu og varð að sætta sig við tap. Helgi endaði í 5. sæti í sínum þyngdarflokki.
Tveir aðrir keppendur tóku þátt fyrir Íslands hönd. Bjarni Júlíus Jónsson úr Keflavík, sem keppir í -65 kg flokki, mætti Pólverja í fyrsta bardaga. Bardaginn var jafn en Pólverjanum var dæmdur sigur. Hann fékk að lokum bronsverðlaun í þyngdarflokknum.
Ágúst Kristinn Eðvarðsson úr Keflavík keppti svo í -33 kg flokki. Hann mætti keppanda frá Tyrklandi í 2. umferð en Tyrkinn reyndist sterkari og vann að lokum til bronsverðlauna í þyngdarflokknum.