Helga og Thelma númer 37 og 39

Helga María Vilhjálmsdóttir.
Helga María Vilhjálmsdóttir. AFP

Helga María Vilhjálmsdóttir hafnaði í 37. sæti og Thelma Rut Jóhannsdóttir í 39. sæti í stórsvigi kvenna á heimsmeistaramóti unglinga í alpagreinum í Jasná í Slóvakíu í dag.

Alls hófu 113 stúlkur keppni en aðeins 56 skiluðu sér í mark í  báðum ferðum. Erla Ásgeirsdóttir og Freydís Halla Einarsdóttir náðu hvorug að ljúka fyrri ferðinni.

Helga fékk 98,97 FIS-punkta fyrir sinn árangur og Thelma 105,44 FIS-punkta.

Þær Helga, Erla og Freydís keppa einnig í svigi á morgun, sem og Auður Brynja Sölvadóttir.

Thelma Rut Jóhannsdóttir.
Thelma Rut Jóhannsdóttir. Ljósmynd/ÍSÍ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert