Þróttarkonur knúðu fram oddaleik

Barátta Aftureldingar og Þróttar frá Neskaupstað um titilinn er jöfn …
Barátta Aftureldingar og Þróttar frá Neskaupstað um titilinn er jöfn og tvísýn. mbl.is/Ómar

Oddaleik þarf til að útkljá einvígið um Íslandsmeistaratitil kvenna í blaki eftir að Þróttur úr Neskaupstað sigraði Aftureldingu, 3:1, í fjórðu viðureign liðanna sem fram fór í Neskaupstað í kvöld.

Liðin þurfa nú að mætast í Mosfellsbæ en staðan er 2:2 að fjórum leikjum loknum. Fimmti og síðasti leikurinn fer fram á föstudagskvöldið kemur.

Þróttarkonur náðu undirtökunum með því að vinna tvær fyrstu hrinurnar, 25:19 og 25:19. Þær byrjuðu betur í þeirri þriðju og komust í 9:5 en því svöruðu Mosfellingar af krafti, breyttu stöðunni í 17:10 og unnu hrinuna að lokum 25:20.

Fjórða hrinan var æsispennandi en allt útlit var fyrir að Afturelding myndi tryggja sér oddahrinu. Mosfellingar komust í 21:17 en Þróttur náði að jafna í 23:23. Afturelding var síðan komin í 25:24 en þá kom góður endasprettur austankvenna, þær skoruðu næstu þrjú stig og unnu hrinuna  27:25.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert