Arnar fimmti í Swansea

Arnar Helgi Lárusson
Arnar Helgi Lárusson Ljósmynd/IF

Arnar Helgi Lárusson endaði í 5. sæti í 100 metra hjólastólaralli í dag á Evrópumóti fatlaðra í frjálsíþróttum í Swansea í Wales í dag. Arnar kom í mark á 18,86 sekúndum.

Mickey Bushell frá Bretlandi varð Evrópumeistari og Pierre Fairbank frá Frakklandi annar en Nicoals Brignone, einnig frá Frakklandi þriðji.

Arnar keppir aftur á morgun á EM, þá á 200 metra hjólastólaralli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert