Arnar tók bronsið á EM

Arnar Helgi á palli ásamt Mickey Bushell sem tók silfrið …
Arnar Helgi á palli ásamt Mickey Bushell sem tók silfrið og Frakkanum Pierre Fairbank Ljósmynd/ÍF

Arnar Helgi Lárusson tók í kvöld við bronsverðlaunum í flokki T53 á Evrópumeistaramótinu í Swansea en hann keppti í hjólastólaralli.

Í braut kom Arnar fimmti í mark við erfiðar aðstæður, talsverða rigningu og mótvind, en þegar öll kurl voru komin til grafar höfðu ítalskur og franskur keppandi verið dæmdir úr leik fyrir línubrot. 

Arnar varð því þriðji af þeim keppendum sem gerðu löglega keppni á mótinu og fagnaði því sínum fyrstu verðlaunum á stórmóti.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert