Metfjöldi á upphafsleik HM í blaki

Metfjöldi áhorfenda var viðstaddur upphafsleik heimsmeistaramótsins í blaki karla í Varsjá í Póllandi í gærkvöldi. Leikið var á þjóðaleikvanginum í borginni og greiddu alls 65.000 áhorfendur aðgang að vellinum og studdu þeir vel við bakið á liði heimamanna sem mætti Serbum.

Pólverjar unnu leikinn í þremur lotum, 25:19, 25:18 , 25:18. Mótinu verður framhaldið í dag en úrslitaleikurinn fer fram sunnudaginn 21. september í Katowice.

Ekki er áformað að leika fleiri leikir keppninnar á þjóðarleikvanginum í Varsjá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert