Daníel og Rakel unnu tvöfalt

Daníel Thomsen og Rakel Jóhannesdóttir úr TBR unnu bæði tvöfaldan sigur á Haustmóti KR í badminton í gær en það fór fram í KR-heimilinu og var liður í Dominos-mótaröð BSÍ. Keppt var í tvíliða- og tvenndarleik á mótinu.

Daníel og Róbert Þór Henn úr TBR sigruðu í tvíliðaleik karla og unnu Daníel Jóhannesson og Einar Óskarsson úr TBR í úrslitum, 21:16 og 21:10.

Rakel og Elín Þóra Elíasdóttir úr TBR sigruðu í tvíliðaleik kvenna en þær unnu Jóhönnu Jóhannsdóttur og Sunnu Ösp Runólfsdóttur úr TBR í úrslitum, 21:16 OG 21:15.

Þau Daníel og Rakel sigruðu síðan í tvenndarleik en þar unnu þau Egil G. Guðlaugsson úr ÍA og Elínu Þóru í úrslitaleik, 21:18 og 21:18.

Á myndunum hér fyrir ofan má sjá keppendurna sem léku til úrslita á mótinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert