Er kærasta Murrays sóðakjaftur?

Þeir sem kunna varalestur halda því fram að kærasta skoska tennisleikarans Andys Murrays hafi blótað andstæðingi hans hressilega á Opna ástralska mótinu í tennis í dag.

„Andskotinn hafi það, þú tékkneska helvítis helvíti,“ (e. F------ have it, you Czech f----- f---) er ein helsta tillagan að því sem Kim Sears, kærasta Murrays er talin vera að segja á myndbandi sem tekið var á leiknum sem fram fór í dag. Þar áttust við Murray og Tomas Berdych frá Tékklandi. Murray sigraði og er nú kominn í úrslitaleikinn á mótinu í karlaflokki.

Fréttamiðlar í Bretlandi, m.a. Telegraph og Independent, segja Sears sagða „sóðakjaft“ eftir ummælin en hún er mjög svo dyggur stuðningsmaður unnusta síns og fylgist vel með öllum hans leikjum. Aðrir segja augljóst að þarna fer kona sem styður mann sinn, sama hvað á dynur. 

Twitter-notendur voru ekki lengi að taka við sér og sagði m.a. einn þeirra sem var einnig áhorfandi að leiknum: „Ég er nú enginn varalesari en ég held að Kim Sears gæti hafa notað mjög fullorðinslegt orðaval.“  Annar sagði augljóst að Sears og Murray væru sálufélagar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert