Ásgeir fékk brons

Ásgeir Sigurgeirsson.
Ásgeir Sigurgeirsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skotkappinn Ásgeir Sigurgeirsson komst í úrslit í loftskammbyssunni á seinni deginum á einu sterkasta móti ársins IWK Hochbrueck 2015 í München í dag.

Ásgeir gekk vel í úrslitunum og endaði í þriðja sæti með 178.5 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert