Maraþonhlaupari skríður í mark (myndskeið)

Hyvon Ngetich, maraþonhlaupi frá Kenýa, hefur vakið talsverða athygli í fjölmiðlaheiminum eftir að hafa sýnt mikinn íþróttaanda í Austin-maraþoninu í Texas. Þar vann hún til bronsverðlauna en þurfti bókstaflega að skríða yfir marklínuna.

Ngetich hrundi niður nærri markinu og virtist ekki vera í nokkru ásigkomulagi til að halda áfram. Hún afþakkaði hins vegar aðstoð þar til hún hafði lokið hlaupinu á fjórum fótum og náð í bronsið.

Síðar tjáði hún fjölmiðlamönnum að hún muni ekki eftir atvikinu og því að hafa skilað sér í mark.

Smelltu hér til að sjá myndskeið af atvikinu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert