Dagfinnur lyfti 555 kílóum - myndskeið

Dagfinnur Ari Normann.
Dagfinnur Ari Normann.

Dagfinnur Ari Normann kraftlyftingamaður úr Stjörnunni gerði sér lítið fyrir og varð Norðurlandameistari unglinga í klassískum kraftlyftingum án hjálpartækja þegar hann lyfti samtals heilum 555 kílóum um síðustu helgi eins og sjá má í myndskeiðinu hér fyrir neðan.

Árangur Dagfinns á Norðurlandamóti unglinga er þessi: Hnébeygur: 195 kg, bekkpressa: 140 kg (Íslandsmet unglinga), réttstöðulyfta: 220 kg sem gera samtals 550 kíló.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert