Öruggt hjá Stjörnunni

Stjarnan lagði KA nokkuð örugglega 3-0 í Mizunodeild karla í blaki í gær og er sem fyrr í öðru sæti deildarinnar.

Leikurinn fór fram í Ásgarði og enduð allar þrjar hrinunar eins, 25:21 fyrir Stjörnuna. 

Stigahæstur hjá Stjörnunni var Róbert Karl Hlöðversson með 16 stig og Ólafur Finnbogi Ólafsson með 10. Hjá KA var Hilmar Sigurjónsson með 16 stig og Ævar Birgisson með 9.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert