Trausti nokkuð frá sínu besta

Trausti Stefánsson hljóp á 48,29 sekúndum í 400 m hlaupi …
Trausti Stefánsson hljóp á 48,29 sekúndum í 400 m hlaupi í undanrásum á EM í morgun. Ómar Óskarsson

Trausti Stefánsson varð í fimmta sæti af sex keppendum í öðrum riðli undanrása 400 m hlaupsins á Evrópumeistaramótinu í frjálsíþróttum í Prag. Hann hljóp á 48,29 sekúndum sem 29/100 úr sekúndu frá hans besta í 400 m hlaupi innanhúss.

Trausti átti ágætan endasprett og skildi eftir Denis Danac frá Slóvakíu sem rak lestina í riðlinum á 48,96.  Tyrkinn Can Yavus frá Tyrklandi náði bestum tíma í riðli Trausta, 47,47.

Trausti er úr leik á mótinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert