Anton Sveinn McKee synti í A-úrslitum í 200 jarda bringu á NCAA-mótinu í gærkvöldi. Þar keppti hann við bestu sundmenn BNA, hafnaði í sjötta sæti á tímanum 1.52,97 mínútum en tími hans í undanrásum var 1.51,97 mín.
Hann hlaut silfurverðlaun í 200 jarda fjórsundi deginum áður er boðsundsveit Alabama náði þeim glæsilega árangri að hafna í öðru sæti og bættu þeir tímann sinn frá undanrásum um eina sekúndu og settu nýtt skólamet. Sveit Alabama endaði í tíunda sæti og bætti sig um tvo sæti frá fyrra ári.