Úrslitin í skvassinu ráðast í dag

Gunnar Þórðarson er kominn í undanúrslitin.
Gunnar Þórðarson er kominn í undanúrslitin.

Íslandsmótið í skvassi hófst í húsakynnum Veggsports í gær og því lýkur um miðjan dag í dag með undanúrslita- og úrslitaleikjum.

Í undanúrslitum í meistaraflokki mætast annars vegar Róbert Fannar Halldórsson og Matthías Jónsson og hinsvegar Mark Wieland og Gunnar Þórðarson og undanúrslitaleikirnir hefjast klukkan 12.30 en úrslitaleikur klukkan 16.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert