„Það er miklu skemmtilegra að spila svona eða eins og við gerðum um daginn,“ sagði Steinunn Helga Björgólfsdóttir, frelsingi HK eftir 3:1 sigur á Aftureldingu í blaki kvenna í dag.
Steinunn átti flottan leik og fór fyrir gríðarlega góðri vörn Kópavogsliðsins. „Liðsheildin var sterk hjá okkur og við börðumst allar virkilega vel. Þetta var algjör viðsnúningur hjá okkur. Í síðasta leik gekk ekkert upp hjá okkur en núna var þetta fínt og þetta er svo miklu skemmtilegra svona,“ sagði Steinunn sem lofaði skemmtilegum leik á þriðjudaginn þegar liðin mætast í oddaleik.