Svana og Elías bikarmeistarar

Svana Katla Þorsteinsdóttir, Breiðabliki, og Elías Snorrason, KFR, bikarmeistarar í …
Svana Katla Þorsteinsdóttir, Breiðabliki, og Elías Snorrason, KFR, bikarmeistarar í karate. Ljósmynd/Karatesambands Íslands

Svana Katla Þorsteinsdóttir, Breiðabliki, og Elías Snorrason, KFR, eru bikarmeistarar í karate en þriðja og síðasta bikarmót keppnistímabilsins fór fram um nýliðna helgi í Smáranum í Kópavogi. Gefin eru stig fyrir hvert mót eftir árangri keppenda og þeir sem hljóta flest stig samtals verða bikarmeistarar. 

Mikil spenna var fyrir mótið um hver yrði bikarmeistari í karla og kvennaflokki, en fyrir mótið var ljóst að nýr meistari yrði krýndur í karlaflokki þar sem bikarmeistari síðustu 5 ára, Kristján Helgi Carrasco, er í hvíld frá keppni þessa önnina.  Fyrir síðasta mótið voru Elías Snorrason, KFR, með 20 stig og Ólafur Engilbert Árnason, Fylki, með 18 stig.  Eftir þau þrjú mót sem mynduðu bikarmótaröðina þetta árið, stóð Elías Snorrason, KFR,  uppi sem sigurvegari og er því bikarmeistari karla í karate 2015, en þess má geta að Elías varð Íslandsmeistari í kata síðastliðinn marsmánuð. 

Í kvennaflokki var ekki síðri spenna, sérstaklega þar sem bikarmeistari síðasta árs, Telma Rut Frímannsdóttir, Afturelding, var ekki með á fyrsta mótinu í haust og því ljóst að hún var talsvert eftir efstu konum að stigum.  Fyrir síðasta mótið var María Helga Guðmundsdóttir, Þórshamri, með 21 stig en Svana Katla Þorsteinsdóttir, Breiðablik, með 20 stig.  Þegar stigin voru talin við lok þriðja mótsins stóð Svana Katla uppi sem sigurvegari með 30 stig og er því bikarmeistari kvenna í karate 2015. Svana Katla varð tvöfaldur Íslandsmeistari í kata í marsmánuði síðastliðnum.

Seinna um daginn fór fram seinna Bushido bikarmótið sem er mótaröð fyrir 12-17 ára unglinga, þar sem keppt er í kata og kumite, skipt í aldursflokka.  

Þau sem stóðu uppi sem sigurvegarar og Bushido bikarmeistarar eru;

Kata 12 ára barna, Máni Hákonarson, Afturelding

Kata 13 ára táninga, Viktor Steinn Sighvatsson, Fjölnir

Kata 14 ára táninga, Mary Jane P Rafael, Leiknir

Kata 15 ára táninga, Laufey Lind Sigþórsdóttir, Breiðablik

Kata 16-17 ára unglinga, Bogi Benediktsson, Þórshamar

Kumite drengja 12-13 ára  45 mínus, Máni Hákonarson, Afturelding

Kumite drengja 12-13 ára 45 plús, Hrannar Ingi Arnarson, Fylkir

Kumite pilta 14-15 ára, Ágúst Heiðar Sveinbjörnsson, Fylkir

Kumite pilta 16 og 17 ára, Ólafur Engilbert Árnason, Fylkir

Kumite telpna 12 og 13 ára, Iveta Ivanova, Fylkir

Kumite stúlkna 14 og 15 ára, Lilja Vigdís Davíðsdóttir, Fylkir

Kumite stúlkna 16 og 17 ára, Edda Kristín Ólafsdóttir, Fylkir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert