Hinn filippseyski Manny Pacquiao gæti fengið refsingu frá hnefaleikaráði Nevadaríkis fyrir að hafa ekki tilkynnt axlarmeiðsli fyrir bardaga hans við Floyd Mayweather, dýrasta bardaga í sögu hnefaleikanna sem fór fram 2. maí.
Skrifstofa ríkissaksóknara Nevada mun rannsaka hvers vegna Pacquiao svaraði spurningu um axlarmeiðsli neitandi á opinberum spurningalista.
Kappinn á á hættu að vera settur í bann eða sektaður fyrir að svara ranglega á eyðublaðinu sem hann fyllti sjálfur út. Hann tapaði síðan á stigafjölda fyrir Floyd Mayweather í einum stærsta bardaga allra tíma.
Búist er við því að Pacquiao fari í aðgerð seinna í vikunni vegna meiðslanna.