Nú liggur fyrir hvar íslensku íshokkílandsliðin munu spila í sínum deildum á HM á næsta ári ef mið er tekið af heimasíðu Alþjóða íshokkísambandsins. Kvennalandsliðið fer til Tyrklands en karlalandsliðið til Spánar.
Konurnar verða í Ankara í Tyrklandi dagana 29. febrúar til 6. mars 2016. Auk Tyrklands og Íslands eru Nýja - Sjáland, Mexíkó, Spánn, Ástralía. Um er að ræða B-riðil 2. deildar HM. Nýja-Sjáland féll niður í úr A-riðli 2. deildar en Tyrkland kom upp úr A-riðli 3. deildar.
Karlarnir fara til Jaca á Spáni. Auk Spánverja og Íslendinga leika í riðlinum Hollendingar, Belgar, Serbar, Spánverjar og Kínverjar. Um er að ræða A-riðil 2. deildar HM. Holland féll niður úr B-riðli 1. deildar og Kína kom upp úr B-riðli 2. deildar.