Viktor varð fjórði á HM

Viktor Ben Gestsson.
Viktor Ben Gestsson. mbl.is/Golli

Viktor Ben Gestsson úr Breiðabliki hafnaði í 4. sæti á heimsmeistaramóti unglinga í bekkpressu en mótið fer fram í Svíþjóð.

Viktor, sem keppir í +120 kg flokki, var að keppa á sínu fyrsta móti í unglingaflokki og bætti árangur sinn mikið. Hans besti árangur fyrir mótið var 255 kg en hann náði að bæta sig um 15 kg á mótinu.

Viktor opnaði á 250 kg sem var létt og örugg lyfta og stökk því næst í 260 kg sem einnig var gild lyfta hjá honum og bæting því komin í hús. Í seinustu lyftu pressaði hann svo 270 kg og var um tíma í brons stöðu eða þar til Svíinn Calle Nilsson náði loks gildri lyftu í þriðju tilraun. Viktor hafnaði því í 4.sæti en sigurvegarinn var Nilsson með 295 kg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert