Hafdís Sigurðardóttir úr UFA bætti Íslandsmet sitt í langstökki á 2. hluta Vormóts UFA fyrr í kvöld. Hún stökk lengst 6,45 metra. Fyrra met Hafdísar í greininni var 6,41 metrar, sett í Evrópukeppni landsliða í Tbliisi í Georgíu í fyrra.
Stökkséría hennar var mjög jöfn og góð að þessu sinni. Hún átti lengst stökk sem mældist 6,54 metrar en meðvindur var 2,1 m/sek eða 1/10 yfir löglegum mörkum.