Tennisliðið valið fyrir Smáþjóðaleikana

Birkir Gunnarsson er í hópnum.
Birkir Gunnarsson er í hópnum. mbl.is/hag

Nú eru einungis nokkrir dagar í að Smáþjóðaleikarnir hefjist á Íslandi en þeir standa yfir 1.-6.júní næstkomandi. Tennissamband Íslands hefur tilkynnt liðið sem keppir á leikunum, og er það skipað eftirfarandi leikmönnum.

Anna Soffia Grönholm
Birkir Gunnarsson
Hera Björk Brynjarsdóttir
Hjördís Rósa Guðmundsdóttir
Rafn Kumar Bonifacius

Liðsstjóri: Magnús Gunnarsson
Flokkstjóri: Þrándur Arnþórsson
Greinarstjóri: Raj K. Bonifacius

Ísland hefur rétt á að tefla fram tveimur keppendum í einliðaleik karla/kvenna, einu liði í tvíliðaleik karla/kvenna og einu liði í tvenndarleik.

Í einliðaleik munu Birkir, Rafn Kumar, Anna Soffia og Hjördís Rósa keppa.

Í tvíliðaleik karla munu Birkir og Rafn Kumar spila saman og í tvíliðaleik kvenna munu Anna Soffia og Hjördís Rósa spila saman.

Í tvenndarleik munu Birkir og Hera Björk spila saman.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert