Tveir oddaleikir framundan í NHL

Oddaleiki þarf til að knýja fram úrslit í undanúrslitum amerísku NHL-deildarinnar í íshokkí.

New York Rangers og Chicago Blackhawks réttu bæði hlut sinn í sjötta leik og er staðan því 3:3 í báðum undanúrslitarimmunum. Rangers vann Tampa Bay 7:3 og Chicago vann Anaheim 5:2.

Rangers og Anaheim eiga heimaleikjaréttinn og þar fara oddaleikirnir fram.

Annað kvöld mætast Rangers og Tampa Bay í Madison Square Garden og á laugardagskvöld eigast Anaheim og Chicago við í Orange County í Kaliforníu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert