Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hefur staðfest tilnefningar sérsambanda sinna um þátttakendur á Smáþjóðaleikunum á Íslandi 1.-6. júní n.k.
Alls senda ellefu sérsambönd þátttakendur til leiks til keppni í blaki, borðtennis, fimleikum, frjálsum íþróttum, golfi, júdó, körfuknattleik, skotfimi, sundi, strandblaki og tennis.
Alla íslensku keppendurna, fararstjóra og fylgisveitir má sjá HÉR.